Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 768/2019

Nr. 768/2019 22. ágúst 2019

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 460/2015, um baðstaði í náttúrunni.

1. gr.

3. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar fellur brott.

2. gr.

Á eftir 2. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar bætist við ný málsgrein sem orðast svo:

Heimilt er í afþreyingalaugum að veita áfengi í takmörkuðu magni, í margnota umbúðum eða marg­nota glösum, á baðstað. Óheimilt er að nota umbúðir og glös sem valdið geta slysahættu. Einnig má veita drykki í þeim umbúðum sem þeir koma í enda uppfylla þær skilyrði 2. málsl. Þegar áfengi er veitt á baðstað skal gæta sérstakrar varúðar og fjalla um öryggi baðgesta, hámark áfengiseininga á hvern einstakling og umfang laugargæslu vegna þess í öryggisreglum. Sérstaklega skal fjallað um veitingu áfengis í starfsleyfi, m.a. vegna öryggismála og ef gerð er strangari krafa um laugargæslu. Áfengisveitingar eru leyfisskyldar samkvæmt ákvæðum laga nr. 85/2007 um veit­inga­staði, gististaði og skemmtanahald.

3. gr.

Ákvæði til bráðabirgða orðast svo:

Þrátt fyrir 1. málsl. 2. mgr. 7. gr. er heimilt að nota einnota niðurbrjótanlegar eða endurvinnan­legar umbúðir til 1. september 2020.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 15. tölul. 4. gr. laga nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunar­varnir og öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 22. ágúst 2019. 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 5. september 2019