Sólvallagata 10. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 26. júní 2020, breytingu á deiliskipulagi Hólatorgsreits vegna lóðarinnar nr. 10 við Sólvallagötu. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit norðan við húsið um um það bil 2 metra. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Gufuneshöfði. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, þann 1. júlí 2020, tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hamrahverfis vegna Gufuneshöfða. Í breytingunni felst að leyfileg hæð masturs verði um 15 metrar í stað 10 metrar ásamt því að akfær aðkomuslóði verður varanlegur en ekki tímabundinn. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Háaleitisbraut 1. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 21. febrúar 2020, tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 1 við Háaleitisbraut. Í tillögunni felst að bætt verður við tveimur nýjum byggingarreitum á lóð Háaleitisbrautar 1 auk þess sem heimilt verður að stækka hús Veitna við Bolholt 5. Næst Kringlumýrarbraut verður heimilt að reisa fimm hæða skrifstofubyggingu með bílakjallara. Á horni Skipholts og Bolholts verður heimilt að reisa sex hæða íbúðarhús með bílakjallara ásamt þjónustu- og verslunarrými á 1. hæð. Bílastæðum fjölgar og verður hluti þeirra í bílakjallara. Byggingarmagn og nýtingarhlutfall hækkar á báðum lóðum sem þessu nemur. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 10. júlí 2020,
Björn Axelsson.
|