Vestursvæði flugstöðvarsvæðis, lóð Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar samþykkti þann 13. júlí deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi vestursvæðis Keflavíkurflugvallar. Breytingin felst í stækkun byggingarreits Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar til austurs. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi. Nánari upplýsingar um deiliskipulagið er hægt að fá hjá skipulagsfulltrúa Keflavíkurflugvallar, [email protected].
F.h. skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar, 15. júlí 2020,
Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúi.
|