Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 39/2021

Nr. 39/2021 7. október 2021

AUGLÝSING
um samning við Færeyjar um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2014.

Hinn 7. og 9. apríl 2014 var með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík gengið frá samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2014. Samningur­inn öðlaðist gildi til bráðabirgða 9. apríl 2014. Alþingi hafði með þingsályktun nr. 19/143 hinn 12. maí 2014 heimilað ríkisstjórninni að staðfesta samninginn.

Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 7. október 2021.

 

F. h. r.

Martin Eyjólfsson.

Anna Jóhannsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 27. október 2021