Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 636/2019

Nr. 636/2019 21. júní 2019

AUGLÝSING
um deiliskipulag frístundabyggðar á Ytri-Gunnólfsá II í Ólafsfirði, Fjallabyggð.

Bæjarstjórn Fjallabyggðar samþykkti 12. apríl 2019, deiliskipulag fyrir frístundabyggð á Ytri-Gunnólfsá II í Ólafsfirði. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir 15 lóðum fyrir frístundahús á um 3,5 ha svæði. Deiliskipulagið hefur hlotið meðferð skv. 41. og 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deili­skipulagið öðlast þegar gildi.

Fjallabyggð, 21. júní 2019.

Íris Stefánsdóttir skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 5. júlí 2019