Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 368/2021

Nr. 368/2021 6. apríl 2021

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Akureyrarbæ.

Breyting á deiliskipulagi miðbæjarins, Gilsbakkavegur 15.
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti 15. desember 2020 deiliskipulagsbreytingu fyrir Gilsbakka­veg 15.
Breytingin felur í sér að heimilt verður að byggja við núverandi hús á suðurhlið og hækkar nýtingar­hlutfall í 2,1, byggingarreitur og lóð stækka til suðurs og austurs. Hluti Gilsbakkavegar og bílastæði hliðrast til suðurs en bílastæðum fækkar ekki.
Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.

 

F.h. Akureyrarbæjar, 6. apríl 2021,

 

Margrét M. Róbertsdóttir verkefnastjóri skipulagsmála.


B deild - Útgáfud.: 7. apríl 2021