Samkomulag milli Íslands, Danmerkur, Færeyja, Grænlands, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, um breytingar á samningi þeirra frá 19. ágúst 1986 um stofnun á norrænum þróunarsjóði, sem gert var í Reykjavík 27. október 2015, öðlaðist gildi 13. apríl 2017.
Samkomulagið felur í sér þá breytingu á 5. gr. samningsins um höfuðstöðvar sjóðsins að eftirleiðis skulu þær staðsettar í Færeyjum, á Grænlandi eða á Íslandi.
Samkomulagið er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 3. mars 2021.
Guðlaugur Þór Þórðarson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|