Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 777/2019

Nr. 777/2019 6. september 2019

REGLUGERÐ
um endurvinnslu skipa.

1. gr.

Gildistaka tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Eftirtaldar reglugerðir sem vísað er til í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efna­hagssvæðið, öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af XX. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 frá 20. nóvember 2013 um endur­vinnslu skipa og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1013/2006 og tilskipun 2009/16/EB, sem vísað er til í tl. 32fh í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efna­hagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 257/2018, frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 85, 20. desember 2018, bls. 113-132. Þrátt fyrir 1. málsl. öðlast EES-gerðin gildi hér á landi með eftirfarandi viðbótum:
    a) Á eftir orðunum „reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009“ í 10. tl. 1. mgr. 3. gr. er bætt við orðunum: eða í samræmi við tilskipun ráðsins 94/57/EB, eftir því sem við á.
    b) Í 4. gr. og 14. gr. ber að skilja „viðeigandi löggjöf Sambandsins“, „ákvæði í lögum Sam­bandsins“ eða „löggjafar einstakra aðildarríkja eða Sambandsins“ sem þau ákvæði EES-samningsins sem eiga við.
    c) Í 16. gr.:
      a) í a-lið 1. mgr. er eftirfarandi orðum bætt við á eftir orðunum „3. mgr. 14. gr.“: , eða sem eru staðsettar í EFTA-ríki og það EFTA-ríki hefur tilkynnt um þær til Eftirlits­stofnunar EFTA í samræmi við 3. mgr. 14. gr.,
      b) í staðinn fyrir orðin „staðsettar í aðildarríkjunum“ í 2. mgr. koma orðin: staðsettar á Evrópska efnahagssvæðinu,
      c) í 6. mgr. er eftirfarandi undirgrein bætt við: Hvað þessa grein varðar skal Eftirlits­stofnun EFTA senda framkvæmdastjórninni allar viðeigandi upplýsingar sem henni berast í samræmi við fyrstu undirgrein eða 14. gr.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2398 frá 17. desember 2015 um upplýsingar og skjöl í tengslum við umsókn frá stöð, sem er staðsett í þriðja landi, um innfærslu í Evrópuskrána yfir skipaendurvinnslustöðvar, sem vísað er til í tl. 32fha í V. kafla XX. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 260/2018, frá 5. desember 2018. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85, 20. desember 2018, bls. 147-157.

2. gr.

Hlutverk Umhverfisstofnunar.

Umhverfisstofnun gegnir hlutverki lögbærs yfirvalds, sbr. 18. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1257/2013, sbr. 1. tölul. 1. gr.

3. gr.

Endurvinnsluáætlanir.

Umhverfisstofnun samþykkir endurvinnsluáætlanir skipa áður en endurvinnsla hefst, sbr. 7. gr. reglugerðar (ESB) nr. 1257/2013, sbr. 1. tölul. 1. gr. Umhverfisstofnun skal taka afstöðu til endur­vinnslu­áætlunar innan 60 daga frá móttöku hennar.

4. gr.

Útgáfa starfsleyfis.

Starfsemi þar sem fram fer endurvinnsla skipa skal hafa gilt starfsleyfi. Umhverfisstofnun veitir starfsleyfi fyrir starfsemi þar sem fram fer endurvinnsla skipa sem eru 500 brúttótonn eða meira en heilbrigðisnefndir sveitarfélaga veita starfsleyfi fyrir starfsemi þar sem fram fer endurvinnsla skipa undir 500 brúttótonnum. Um útgáfu starfsleyfa fer samkvæmt lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

5. gr.

Evrópuskrá.

Umhverfisstofnun heldur utan um skrá yfir skipaendurvinnslustöðvar og birtir á vefsíðu sinni. Jafnframt skal Umhverfisstofnun hafa upplýsingar um Evrópuskrá yfir skipaendurvinnslustöðvar á vefsíðu sinni.

6. gr.

Eftirlit.

Um eftirlit með reglugerð þessari fer samkvæmt XIII. kafla laga um meðhöndlun úrgangs.

7. gr.

Þvingunarúrræði og viðurlög.

Um brot gegn ákvæðum reglugerðar þessarar fer samkvæmt XIII. kafla laga um meðhöndlun úrgangs.

8. gr.

Innleiðing tiltekinna gerða Evrópusambandsins.

Reglugerðin er sett til innleiðingar á eftirtöldum EES-gerðum:

  1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 1257/2013 frá 20. nóvember 2013 um endur­vinnslu skipa og um breytingu á reglugerð (EB) nr. 1013/2006 og tilskipun 2009/16/EB.
  2. Framkvæmdarákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2015/2398 frá 17. desember 2015 um upplýsingar og skjöl í tengslum við umsókn frá stöð, sem er staðsett í þriðja landi, um innfærslu í Evrópuskrána yfir skipaendurvinnslustöðvar.

9. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 64. gr. b. laga nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 6. september 2019.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.


B deild - Útgáfud.: 9. september 2019