Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 17/2019

Nr. 17/2019 14. mars 2019

FORSETAÚRSKURÐUR
um breytingu á forsetaúrskurði nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar, laga um Stjórnarráð Íslands, forsetaúrskurðar um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti og forseta­úrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands er hér með gerð eftir­farandi breyting á forsetaúrskurði nr. 120/2018, um skiptingu starfa ráðherra.

1. gr.

3. gr. úrskurðarins orðast svo ásamt fyrirsögn:

Dómsmálaráðuneyti.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir fer með stjórnarmálefni sem heyra undir dómsmála­ráðuneytið skv. 3. gr. forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnar­ráði Íslands og ber embættisheitið dómsmálaráðherra.

2. gr.

Forsetaúrskurður þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 14. mars 2019.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.


A deild - Útgáfud.: 14. mars 2019