Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 802/2017

Nr. 802/2017 30. ágúst 2017

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps vegna Réttarholts A.

Skipulagsstofnun staðfesti þann 30. ágúst 2017 breytingu á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúp­verja­hrepps 2004-2016 sem samþykkt var í sveitarstjórn 1. ágúst 2017.
Í breytingunni felst að 4 ha af spildu sem er skilgreind sem landbúnaðarland austan við þéttbýlið Árnes er breytt í svæði fyrir verslun og þjónustu. Fyrirhugað er að byggja gistiaðstöðu fyrir allt að 30 manns í litlum einlyftum húsum og þjónustuhús vegna hestaferða.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsstofnun, 30. ágúst 2017.

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.

Ottó Björgvin Óskarsson.


B deild - Útgáfud.: 14. september 2017