Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 581/2022

Nr. 581/2022 5. maí 2022

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 380/2013 um lofthæfi- og umhverfisvottun loftfara og tilheyrandi framleiðsluvara, hluta og búnaðar og vottun hönnunar- og framleiðslufyrirtækja.

1. gr.

Við 3. gr. reglugerðarinnar bætast nýir töluliðir svohljóðandi:

  1. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/897 frá 12. mars 2019 um breyt­ingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar að fella inn í I. viðauka áhættu­miðaða sannprófun á því að tilskildar kröfur hafi verið uppfylltar og framkvæma kröfur um umhverfis­vernd.
  2. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2020/570 frá 28. janúar 2020 um breyt­ingu og leiðréttingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar samræmingu á reglum um áframhaldandi lofthæfi loftfara og annarra framleiðsluvara, hluta og búnaðar til flugs við reglugerð (ESB) nr. 1321/2014.
  3. Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1088 frá 7. apríl 2021 um breyt­ingu á reglugerð (ESB) nr. 748/2012 að því er varðar uppfærslu tilvísana í kröfur um umhverfis­vernd.

 

2. gr.

Reglugerðir (ESB) 2019/897, (ESB) 2020/570 og (ESB) 2021/1088, sem nefndar eru í 1. gr., eru birtar sem fylgiskjöl við reglugerð þessa.

 

3. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 7. mgr. 28. gr., sbr. 145. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Innviðaráðuneytinu, 5. maí 2022.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.

 

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 19. maí 2022