Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 955/2019

Nr. 955/2019 31. október 2019

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 147/2016 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 3. tl., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1787 frá 24. október 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/6 um setningu sérstakra skilyrða fyrir inn­flutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyss­ins í Fukushima-kjarnorkuverinu.

2. gr.

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1787 er birt á ensku í C-deild Stjórnar­tíðinda, sem fylgiskjal við auglýsingu nr. 3/2019.

3. gr.

Reglugerðin er sett með heimild í 27. gr. b og 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. október 2019.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 4. nóvember 2019