1. gr.
Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 955/2019 um (2.) breytingu á reglugerð nr. 147/2016 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:
Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1787 frá 24. október 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/6 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.
2. gr.
Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og öðlast þegar gildi.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. október 2019.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Kristján Skarphéðinsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|