Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 8/2024

Nr. 8/2024 29. janúar 2024

AUGLÝSING
um innleiðingu á breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins (ESB) 2017/625.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 162/2024 um (5.) breytingu á reglugerð nr. 581/2021 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/405 um skrár yfir þriðju lönd eða svæði þeirra sem hafa heimild til að flytja inn tiltekin dýr og vörur, sem eru ætluð til manneldis, til Sambandsins í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins (ESB) 2017/625, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/334 frá 19. janúar 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2021/405 að því er varðar skrárnar yfir þriðju lönd með samþykkta eftirlitsáætlun og sem hafa heimild til að flytja inn sendingar af tilteknum lifandi, kældum, frystum eða unnum samlokum, skrápdýrum, möttuldýrum og sæsniglum og lagar­afurðum til Sambandsins. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

 

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli, 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og 29. gr. b laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Matvælaráðuneytinu, 29. janúar 2024.

 

Katrín Jakobsdóttir.

Emilía Madeleine Heenen.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 9. febrúar 2024