Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 3/2019

Nr. 3/2019 31. október 2019

AUGLÝSING
um innleiðingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1787 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/6 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu.

1. gr.

Eftirfarandi reglugerð öðlast gildi hér á landi með reglugerð nr. 955/2019 um (2.) breytingu á reglugerð nr. 147/2016 um setningu sérstakra skilyrða fyrir innflutningi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, sem birt er í B-deild Stjórnartíðinda:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/1787 frá 24. október 2019 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2016/6 um setningu sérstakra skilyrða fyrir inn­flutn­ingi á fóðri og matvælum, sem eru upprunnin í Japan eða send þaðan, í kjölfar slyssins í Fukushima-kjarnorkuverinu. Reglugerðin er birt á ensku í fylgiskjali með auglýsingu þessari.

2. gr.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli og 7. gr. laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og öðlast þegar gildi.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 31. október 2019.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Skarphéðinsson.

Iðunn Guðjónsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 4. nóvember 2019